Kristveig í Sveré

Friday, September 30, 2005

Klukk...

Ég er nú ekki alveg viss hvernig þetta klukk virkar en á maður að segja e-ð um sjálfan sig sem maður er ekki stoltur af... eða kannski það sem maður er rooosa stoltur af? Ég prufa alla vega...

1. Ég hef gengið yfir Reykjavíkurflugvöll við lítinn fögnuð starfsmanna...

2. Ég er týpan sem spyr alltaf mest og heimskulegast í tímum (þegar ég er í skóla s.s)...

3. Ég fór í fýlu við íslenskukennarann minn í 9.bekk þegar hann vildi ekki leyfa mér að svara ÖLLUM spurningunum hans.

4. Ég á mjöööög erfitt með að standast súkkulaði...

5. Ég huxa allllllt of mikið og geri líka of mikið af því að oftúlka það sem fólk gerir eða segir (ýmist mér í hag eða óhag...)

Þetta er nú bara ekkert svo erfitt... Átti maður bara að telja upp 5 atriði???

Ég klukka Boggu, Kollu og Ásdísi frænku ef þessar dömur lesa þá einhvern tíma bloggið mitt... sem alls ekki víst... ;)

4 Comments:

  • At 2:26 PM, Anonymous Anonymous said…

    Sael elsku Kristveig!
    Gaman ad lesa bloggid thitt. Vid sitjum her tvaer a Valthjofsstodum og reynum okkur i tolvumalum. Amma sendir skilabod um ad thu faekkir skammstofunum og enskuslettum i blogginu thinu ;)
    Vorum ad enda vid ad gera um 20 lifrarpylsukeppi og erum thegar buin ad hesthusa theim fyrsta.

    Heyri i ther um helgina
    Knus *
    Kristbjorg og Amma

     
  • At 7:46 AM, Blogger Kristveig said…

    hehe... já, það er satt, maður verður að vanda málfarið betur! ;)
    Gaman að fá kveðju frá ykkur langmæðgum!

     
  • At 10:54 PM, Blogger Rúna said…

    Kriz mín...
    Þú stendur þig ekki nógu vel í skrifunum! Maður vill fá að lesa um hvað þú ert að bauka... skil samt að það sé mikið að gera.
    Hvenær má maður svo koma í heimsókn til Stokkhólms... og hvenær ætlar þú að kíkja til Hollands :) Verðum líka að fara að plana NB fund fljótlega.
    Annars allt fínt hér nema hollenskan gengur hægt, orðaforðinn minn er ennþá bara undir beltisstað... en það kemur.

     
  • At 11:16 AM, Anonymous Anonymous said…

    Kristveig min!!!

    Thetta gengur ekki, thu verdur ad fara ad blogga... thad tharf ekki ad vera langt, en tha faerdu lika einhver svor!

    Er ad vinna i thvi ad bletta bilinn minn i bilskur afa og ommu um helgina og tok afa i sma fotsnyrtingu i leidinni ;) Fekk svidasultu og kartoflumus i hadeginu hja theim thvi i dag er fyrsti vetrardagur! Og svo afmaeli brosa litla a morgun!

    Knus *
    Lillsyrran

     

Post a Comment

<< Home