Kristveig í Sveré

Tuesday, November 08, 2005

Coldplay tónleikarnir!!!

Þvílíkir tónleikar!!! Ég, Íris og Dagný fórum sem sagt á Coldplay tónleika í gær og það var ekkert smá gaman. Frábær tónlist, brilliant söngvari og frábærlega flott "sýning"!
Íris er annars búin að vera hjá mér síðan á föstudaginn og fór í dag. Erum búnar að kjafta mikið á þessum nokkru dögum en höfum líka afrekað ýmislegt... Við fórum á National museet á laugardaginn, á Drottningholmen á sunnudaginn (þar sem konungshjónin búa) og svo í búðarráp í gær. Erum auk þess búnar að þræða heimboð á öllum helstu stöðum bæjarins....eða svona næstum... Ekki amalegt að skella sér í matarboð út um allt þegar maður sjálfur er með gest...hehe... Fórum í íslendeingapartý á föstudagskvöldið og svo þaðan niður í bæ. Okkur tókst nú ekki að komast inn á neinn skemmtistað en skemmtum okkur aftur á móti konunglega við að hlusta á sögur Björns Víkings um samskipti hans við gamlar sænskar kellingar og fleira þvíumlíkt...hehe...
Á laugardagskvöldinu fórum við stöllur ásamt Siggu frænku í dýrindis þriggja rétta matarboð til Dagnýjar og á sunnudagskvöldið var matarklúbbur hjá Stebba og ekki síðri matur þar... mmmm... Dásamlegt alveg hreint! Reyndar var vogin ekki alveg eins sátt við öll þessi matarboð... en úr því verður bætt hið snarasta. Maður getur t.d. hakkað í sig nokkrum pökkum af Läckerol þar sem "överdriven konsumption kan ha laxerande effecter"... getur ekki klikkað...hehe...

4 Comments:

  • At 2:44 PM, Anonymous Anonymous said…

    Já eða BORÐAÐ nokkra pakka af Extratyggjói, það hefur víst laxerandi áhrif líka...skrítið!!! :)

     
  • At 4:58 PM, Anonymous Anonymous said…

    Ég var einmitt mitt með läkerol upp í mér þegar ég las þetta og fannst þetta mjög skemmtilegar upplýsingar. Borða bara aðeins meira og þá er ég komin í megrun hérna við tölvuna. Öfunda ykkur annars af öllum þessum skemmtilegu tónleikum.

     
  • At 1:16 AM, Anonymous Anonymous said…

    Gaman gaman... það er alltaf gaman að sjá Coldplay... good feel band!

    Það spillir nú aðeins fyrir líkamsræktinni ef maður er með niðurgang af xylitol-overdose! Gangi þér vel í átakinu ;)

    Knús *
    Kristbjörg

     
  • At 5:10 AM, Blogger Kristveig said…

    Já, hef svo sem ekki hellt mér út í mikla "neyslu" ennþá...hehe

     

Post a Comment

<< Home