Kristveig í Sveré

Monday, November 22, 2004

Nú er ég...

...frelsuð!!!
Fór á námskeið í Kaðlajóga (Rope Yoga) um helgina og það er bara alger snilld!
Mamma og pabbi gáfu mér sko þetta námskeið og ég fylltist öll af mótþróa (er ekki ennþá vaxin upp úr unglingaveikinni...) en lét mig nú samt hafa það að fara. Svo kom bara í ljós að þetta var æði og hentaði mér mjög vel. Ég hélt sko að heimspekin í kringum þetta væri eitthvað væmið trúarvæl og æfingarnar væru bara "kellingateygjur" en svo var alls ekki raunin. Ég er eiginlega sammála öllu sem sagt var á námskeiðinu og er að drepast úr strengjum eftir allar æfingarnar! Hann Guðni, sem er upphafsmaðurinn að kaðlajóga, var sjálfur með námskeiðið og hann er bara alveg brill!
Svo kom ég fram í misglæsilegum æfingum í sjónvarpinu í gær! Maður er bara að verða frægur!

4 Comments:

  • At 10:40 AM, Anonymous Anonymous said…

    Fræg?? Held það nú... bara alltaf on TV! En já jóga er hrein snilld..
    Vala

     
  • At 2:22 PM, Anonymous Anonymous said…

    Rosalega eru mamma þín og pabbi góð ! Gaman að fá svona framandi/spennandi gjöf :)

     
  • At 5:37 AM, Blogger Rúna said…

    já þú ert bara alltaf í sjónvarpinu :)

     
  • At 6:16 AM, Blogger Kristveig said…

    Sástu mig?

     

Post a Comment

<< Home