Kristveig í Sveré

Monday, September 04, 2006

Já, ætli maður skelli ekki bara inn smá bloggi...

Er reyndar ekki í neitt voða miklu skrifstuði en ætla að henda inn nokkrum myndum :)
Ef ég byrja ca þar sem frá var horfið í síðustu skrifum þá koma hér fyrst myndir úr Stokkhólmarapartíi góðu. Þessar myndir eru teknar frekar snemma kvölds, áður en ég setti upp sólgleraugun, braut hælinn undan öðrum skónum mínum, reyndi án teljandi árangurs að brjóta hinn, týndi veskinu mínu um stund og týndi treflinum...hehe



Svo kemur hér ein mynd af ca 100 sem teknar voru þegar stelpudeild Norðurbandalagsins hittist og skellti sér út á lífið. Þetta er held ég með betri myndunum... ég er alla vega ekki með sósublett á kinninni eins og á flestum öðrum myndum...hehe... Við stöllurnar skelltum okkur líka á tónleika með Belle&Sebastian fyrr í sumar og það var mjööög gaman, mæli með þeirri hljómsveit!

Skelli líka einni sem heppnaðist jafnvel enn betur...


Nú, svo sameinaðist fjölskyldan fyrir norðan um verslunarmannahelgina og við skelltum okkur á tónleika með Sigurrós í Ásbyrgi og það var þvílíkt flott!



Pabbi átti líka afmæli á laugardeginum :)


Ætli ég láti þetta ekki duga af myndum...
Af mér er það annars helst að frétta að ég er komin aftur til Svíþjóðar eftir alveg frábært sumar á Íslandi og það er sko ekki veðrinu að þakka... hehe... heldur bara öllu skemmtilega fólkinu sem ég þekki! Hér vantar auðvitað inn myndir af fullt af fólki við skemmtileg tækifæri en ég er dálítið svona "allt eða ekkert" týpa í myndavélarmálum svo að sumt var myndað í bak og fyrir en annað alls ekki...
Ég vil að lokum þakka öllum sem ég hitti í sumar fyrir samveruna, lifið heil!

5 Comments:

  • At 3:05 PM, Anonymous Anonymous said…

    Dule deppa!

    Gaman að kíkja á þig, sakna auðvitað skvísumyndanna af Laugaveginum, þær voru auðvitað flottastar.

    Annars bara, må bra!

     
  • At 3:52 AM, Blogger Kristveig said…

    Ja, alveg rett, ta var eg med myndavelina en matti ekki taka myndir!!! hehe... ;)

     
  • At 2:49 PM, Blogger Kristveig said…

    This comment has been removed by a blog administrator.

     
  • At 2:51 PM, Blogger Kristveig said…

    Takk elsku barþjónninn minn :) Mjög gott að eiga menn að eins og þig!

     
  • At 3:00 PM, Blogger Kristveig said…

    Úps... strokaði út kommentið þitt barþjónninn minn, var ekki alveg að meika tækniheiminn... ;) Takk fyrir kveðjuna ;)

     

Post a Comment

<< Home