Kristveig í Sveré

Tuesday, October 31, 2006

Snilldarferð til Barcelona!

Já, nú er ég komin heim úr þessari líka dásamlegu ferð til Barcelona. Við Katrín og Stebbi lögðum í hann um hádegið á mánudaginn í síðustu viku og komum svo aftur heim seint á laugardagskvöldið. Við vorum ótrúlega heppin með veðrið því það var 25-27 stiga hiti og sól allan tímann! ...og það var sko búið að rigna í 2 vikur áður en við komum!
Ferðin var mjög góð blanda af skoðunarferðum, kaffihúsum, tapas, rölti um bæinn o.fl. Við skoðuðum Sagrada familia, Gaudi hús, Gaudi garðinn, Dómkirkjuna, Nou Camp, Picasso safnið, Ólympíuþorpið og margt margt fleira. Þetta er alveg ótrúlega falleg borg og ég mæli eindregið með henni.
Fórum á eitt afar skemmtilegt djamm sem byrjaði á stað sem býður upp á kampavín og sveittar samlokur (mjög spes blanda... hehe) en svo færðum við okkur yfir á annan stað sem var eins og garður með þaki ofan á, mjög flott. :)
Ætla nú ekkert að rekja ferðasöguna í smáatriðum en skelli inn nokkrum myndum í staðinn.


Katrín og Stebbi á Placa Catalunya


Ég og Katrín í Dómkirkjunni


Katrín og Stebbi uppi á þaki á Gaudi húsinu


Í Gaudi garðinum


Útsýni yfir borgina efst úr Gaudi garðinum


Sagrada familia


Höllin á Ólympíuhæðinni


Á Arlanda í 1 stigs hita... brrrr...

3 Comments:

  • At 2:14 PM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ!
    Gaman að sjá þessar myndir frá Barcelona - væri alveg til í að skreppa þangað í nokkra daga. Var þar reyndar einmitt fyrir 10 árum og heimsótti alla þessa staði þá, sammála því að borgin er frábær!!
    Ekki verra að fá sól og hita í nokkra daga, hefur kannski getað náð þér í smá tan í leiðinni...
    kv. Imba.

     
  • At 1:41 AM, Blogger Kristveig said…

    Hæ Imba mín. Náði mér nú ekki í neina sólbrúnku en þetta var samt bara svooooo notalegt! Nú er farið að snjóa hér í Stokkhólmi svo þetta var mjög góð upphitun fyrir veturinn... ;)

     
  • At 1:02 PM, Anonymous Anonymous said…

    Mmmmm Barcelona er nottlega æði!
    Gaman að heyra í þér í gær sæta mín og fá smá nasasjón af ferðasögunni - hringi í þig aftur áður en langt um líður!
    knús
    Þorgerður

     

Post a Comment

<< Home