Vúhúúúú!
Jæja, þá er ég búin að skila ritgerðinni minni til prófdómara og nú er bara að krossa fingur og vona að hann geri ekki neinar stórkostlegar athugasemdir...
Það er búið að vera mikið að gera í kórnum undanfarið, var á kóræfingu á mánudags- og miðvikudagskvöldið og svo vorum við að syngja á útskriftarathöfnum KTH í gær og fyrradag. Hér kemur ein mynd af okkur Lovísu uppdressuðum. Ég er nú eitthvað hokin á þessari mynd. Batteríin í myndavélinni voru sko búin eftir þessa mynd.... en ég skelli henni samt inn bara til sýna ykkur hvað við erum glæsilegar með þessar húfur við síðkjólana ;)
Gustaf hennar Dagnýjar útskrifaðist í gær og líka Jacob Possne, sem er í kórnum og svo Steinar Wang. Ég náði að taka myndir af Gustaf en þær eru nú ekki góðar. Set eina hérna inn fyrir Dagnýju... Gustaf er þriðji frá vinstri. Sá Steinar í svip en missti af því þegar hann tók við skírteininu því við vorum held ég að syngja bara rétt á undan eða rétt á eftir.
Nú er ég að fara að lesa mastersverkefni sem ég á að opponera á (gagnrýna...) á mánudaginn. Ég er nú ekkert alveg í einbeitingargírnum en efnið virkar áhugavert (hvernig borgarskipulag hefur áhrif á almenningssamgöngur) svo að ég hlýt að geta sökkt mér ofan í þetta bráðum... :P
Svo er vörnin mín á fimmtudaginn og á föstudaginn koma Sigurlaug og Viðar hennar til mín! Jei! Það verður frábært að fá þau í heimsókn!